Stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri hefur ákveðið að boða til félagsfundar í Lárusarhúsi kl. 10, laugardaginn 1. maí. Umræðuefnið verður rannsóknarskýrslan og sveitarstjórnarstigið.
Einnig verða tilnefndir tveir félagsmenn, karl og kona til að taka þátt í kosningu kjördæmisráðs um tilnefningu í umbótanefnd Samfylkingarinnar. Áhugasamir eru beðnir um að setja sig í samband við Inga Rúnar Eðvarðsson (ire@unak.is) eða þá gefa sig fram á fundinum.
Nánari dagskrá verður send út fljótlega.
Be the first to comment on "Félagsfundur: Rannsóknarskýrslan og sveitarstjórnarstigið"