Samfylkingin á Akureyri heldur aðalfund, fimmtudaginn 15. mars nk. kl. 20 í Lárusarhúsi.
Dagskrá fundarins:
Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar og kosningar
Önnur mál: Stefnumótun Samfylkingarinnar 2012-2014 og önnur verkefni
Á aðalfundinum skal kjósa stjórn félagsins, sem skipuð er fimm fulltrúum og tveimur til vara. Einnig skal kjósa kjósa tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara
Þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér í stjórn félagsins eða sem skoðunarmenn reikninga geta snúið sér til formanns félagsins, Helenu Þ. Karlsdóttur, helenaka@islandia.is / sími 8628823.
Tillögur til aðalfundar skulu hafa borist stjórn félagsins a.m.k. sólarhring fyrir boðaðan fund. Þær skulu vera skriflegar, undirritaðar af tillöguflytjendum og skriflega studdar af ekki færri en 3 fundarmönnum að tillöguflytjendum meðtöldum.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri
Ályktanir lagðar fyrir aðalfund
Reglur um fundarsköp Samfylkingarinnar á Akureyri
Tillögur að breytingum á fundarsköpum lagðar fyrir aðalfund 15 03 2012, lagt fram af stjórn félagsins
Lög Samfylkingarinnar á Akureyri samþykkt á aðalfundi 3. mars 2010
Tillögur að lagabreytingum lagðar fyrir aðalfund 15 03 2012, lagt fram af stjórn félagsins
Be the first to comment on "Aðalfundur Samfylkingarinnar á Akureyri 15. mars"